Innlent

Fundu stera og loftskammbyssu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Óskar
Lögreglan í Vestamannaeyjum fann ætlaðar steratöflur og skammbyssu í húsleit í vikunni. Eigandi íbúðarinnar óskaði eftir því að lögregla myndi leita í íbúðinni eftir að leigjandinn hafði yfirgefið hana. Einnig komust lögregluþjónar að því að neysla fíkniefna hafi farið fram í íbúðinni.

Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í liðinni viku, án þess þó að alvarlegt mál hafi komið upp.

Ein líkamsárás var kærð eftir helgina þar sem um var að ræða líkamsárás fyrir utan skemmtistað í bænum. Þrír menn um tvítugt réðust á annan mann á svipuðum aldri. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni leitaði sá til læknis, en áverkar voru þó ekki alvarlegir og málið er í rannsókn lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×