Innlent

Fundu fyrir skjálfta í Eyjafirði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ekki sést til gossins eins og er þar sem slæmt skyggni er á svæðinu.
Ekki sést til gossins eins og er þar sem slæmt skyggni er á svæðinu. Vísir/Valli
Um 70 skjálftar hafa mælst við Bárðarbungu síðasta sólarhringinn. Stærsti skjálftinn varð í gærkvöldi klukkan 21:19 en hann var 5,2 stig að stærð. Skjálftinn varð í suðaustanverðri Bárðarbunguöskjunni.

Tilkynningar bárust úr Eyjafirði um að hann hefði fundist. Nokkrir voru milli fjögur og fimm stig. Nokkrir hafa einnig mælst undir Bergganginum. Ekki sést til gossins eins og er þar sem slæmt skyggni er á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×