Innlent

Fundu fíkniefni í þremur bílum

Gissur Sigurðsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni í þremur bílum, sem afskipti voru höfð af í gærkvöldi og í nótt. Fyrst fannst smáræði af efnum í kyrrstæðum bíl og gekkst ökumaðurinn við að eiga það.

Síðan var ökumaður stöðvaður, grunaður um akstur undri áhrifum fíkniefna og fundust fíkniefni í bílnum og á farþega hans.

Og loks hafði lögregla afskipti af ökumanni í kyrrstæðum bíl um fimm leytið í morgun og fann fíkniefni í bílnum. Hvorki ökumaðurinn né farþegi hans könnuðustu við að eiga efnin og eru þeir vistaðir í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×