Erlent

Fundu 75 kíló af hassi í óperuhúsinu í Kaupmannahöfn

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Óperuhúsið er fallegt.
Óperuhúsið er fallegt. Vísir/Getty
Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur gefist upp á að finna mögulega eigendur af 75 kílóa hlassi af hassi sem fannst óvænt í Óperuhúsinu í Kaupmannahöfn í febrúar síðastliðnum. Enginn hefur komið og vitjað hassins.

Hassið fannst óvænt í loftræstikerfi óperuhússins en var ákveðið að halda fundinum leyndum svo mögulega væri hægt að finna eigendur þess. Setti lögregla upp eftirlitsmyndavélakerfi og viðamikla rannsókn en allt kom fyrir ekki. Sjö mánuðum síðar hefur enginn sótt pakkann og er lögregla ráðþrota.

Hefur hún gefist upp á að loka málinu og verður hassinu eytt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×