Menning

Fundir í fjörunni urðu að framkvæmdum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 Hildigunnur, Bjarki og Claudia fundust í fjöru og duttu í djúpar samræður. Afrakstur þeirra pælinga er á sýningunni Eins og Eins.
Hildigunnur, Bjarki og Claudia fundust í fjöru og duttu í djúpar samræður. Afrakstur þeirra pælinga er á sýningunni Eins og Eins. Fréttablaðið/Andri Marinó Karlsson
„Hugmyndin að sýningunni kviknaði út frá heimspekilegum samræðum okkar á milli um hluti og uppruna þeirra.

Öll verkin á sýningunni fjalla á einhvern hátt um slíkar skilgreiningar en við vinnum verkin hvert í sínu lagi,“ segir Hildigunnur Birgisdóttir.

Hún er ein þremenninganna sem eiga verk á sýningunni Eins og Eins í Hverfisgalleríi sem verður opnuð í dag milli klukkan 17 og 19.

Hinir eru Bjarki Bragason og Claudia Hausfeld.

Þegar forvitnast er meira um hinar heimspekilegu vangaveltur listafólksins sem leiddu til sýningarinnar segir Hildigunnur.

„Við fundumst í fjöru, nánar tiltekið á Gullströndinni sem er millistykkið milli Seltjarnarness og Reykjavíkur. Þar hófum við þessar umræður þegar við rákumst á ryðhrúgur, plast og glerdrasl sem hafði þó öll svipbrigði náttúrunnar.

Eftir þetta fórum við nánast í pílagrímsferðir í fjöruna til áframhaldandi pælinga og sá staður varð heimili samræðna okkar.

Þó er ekkert okkar að fjalla um þennan stað á sýningunni, heldur eiginleika hans. Út frá honum spruttu fram hugmyndir að verkum hjá hverju og einu og samræðan varð að framkvæmdum.“

Bjarki er með vídeóverk og teikningar á sýningunni, Hildigunnur með skúlptúra og Claudia með ljósmynd og þrívíð verk.

Þau ætla að halda samræðu sinni áfram og taka þátt í ráðstefnunni Art in Translation í Háskóla Íslands 18. september.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×