Innlent

Fundaði með forsætisráðherra Svartfjallalands

Atli Ísleifsson skrifar
Milo Đukanović og Sigurður Ingi Jóhannsson.
Milo Đukanović og Sigurður Ingi Jóhannsson. Mynd/forsætisráðuneytið
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra fundaði með Milo Đukanović, forsætisráðherra Svartfjallalands, fyrr í dag.

Đukanović sækir Ísland heim í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá því að stofnað var til sjálfstæðs ríkis Svartfjallalands.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að heimsóknin sé skipulögð í þakklætisskyni við Ísland fyrir stuðning og vegna þess að Ísland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Svartfjallalands árið 2006. „Einnig er með heimsókn forsætisráðherra Svartfjallalands verið að þakka Íslandi fyrir að vera fyrst ríkja, tíu árum síðar, til að staðfesta viðbótarsamning við Norður-Atlantshafssamninginn sem varðar aðild Svartfjallalands að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Þess má geta að þegar öll ríki NATO hafa staðfest viðbótarsamninginn verður Svartfjallaland 29. aðildarríki bandalagsins.“

Ráðherrarnir ræddu á fundi sínum samskipti ríkjanna og voru sammála um að þau mætti auka og treysta enn frekar á ýmsum sviðum. Þá ræddu þeir meðal annars um öryggis- og varnarmál og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um úrsögn úr Evrópusambandinu.

Sigurður Ingi segir að fundurinn hafi verið afskaplega ánægjulegur og það ylji að finna þá miklu vinsemd og virðingu sem okkur sé sýnd með heimsókn forsætisráðherra Svartfjallalands í tilefni af því að Ísland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Svartfjallalands þann 8. júní 2006 og vera fyrst ríkja til að staðfesta viðbótarsamning um aðild Svartfellinga að NATO.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að Đukanović haldi af landi brott síðdegis í dag, að loknum hádegisverði sem Sigurður Ingi Jóhannsson býður til, honum til heiðurs.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×