Innlent

Fullyrðing lögreglustjóra stangast á við kröfu tónlistarmanna

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum.
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Vísir/Vilhelm
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum fullyrðir að lögregla um allt land veiti fjölmiðlum upplýsingar um kynferðisbrot með sama hætti. Þetta stangast á við kröfu tónlistarmanna, þjóðhátíðarnefndar og bæjarstjórans í Vestmannaeyjum frá því í gær um að lögreglan samræmi upplýsingagjöf um kynferðisbrot.

Sjö af níu umdæmum veita upplýsingar

Fréttastofa kannaði fyrr í vikunni hvernig verklagi er háttað hjá lögregluembættum landsins varðandi upplýsingagjöf til fjölmiðla um kynferðisbrot. Tilefnið var sú ákvörðun lögreglustjórans í Vestmannaeyjum að vilja bíða með að upplýsa fjölmiðla um tilkynnt kynferðisbrot sem upp kunna að koma á Þjóðhátíð.

Hjá sjö af níu umdæmum fengust þær upplýsingar að upplýst er um kynferðisbrot ef þau koma upp og ef fjölmiðlar óska eftir þeim upplýsingum. Hjá lögreglunni á Suðurlandi fengust þær upplýsingar að þær séu veittar ef það stangast ekki á við rannsóknarhagsmuni.

Krafa um samræmda upplýsingagjöf

Sjö hljómsveitir sem hætt höfðu við að spila á þjóðhátíð, meðal annars vegna ákvörðunar lögreglustjórans í Vestmannaeyjum, komust í gær að samkomulagi við bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum. Í sameiginlegri yfirlýsingu sem hljómsveitirnar sjö, þjóðhátíðarnefnd og bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum sendu frá sér síðdegis í gær segir:

„Það er krafa undirritaðra að lögregluumdæmin samræmi upplýsingagjöf hvað kynferðisbrot varðar með það að leiðarljósi að skila skömminni til þeirra sem eiga að bera hana, gerenda.”

„Ein af okkar háværustu kröfum var að breyta verklagi lögreglustjórans (í Vestmannaeyjum, innsk. blm.) en við getum heldur ekki verið að taka lögregluna í gíslingu,” sagði Unnsteinn Manuel Stefánsson, liðsmaður Retro Stefson í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Ekki þörf á að samræma upplýsingagjöf

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, fullyrti í samtali við Vísi í gær að lögregla um allt land hefði sama háttinn á þegar kemur að því að veita fjölmiðlum upplýsingar um kynferðisbrot. Í samtali við fréttastofu sagði hún að því væri ekki þörf á að samræma upplýsingagjöf líkt og krafist er í fyrrgreindri yfirlýsingu.

„Ég veit það að öll lögregluumdæmi þau fylgja lögunum og við erum öll að vinna í sama lagaumhverfi. Og við berum öll sömu skyldur. Og við virðum þetta, við erum ekki að offra rannsóknarhagsmunum í neinu einasta tilviki,” segir Páley.

Þegar fjölmiðlar óskuðu um síðustu verslunarmannahelgi eftir upplýsingum frá lögregluembættum landsins um hvernig skemmtanahald hefði farið fram voru allar almennar upplýsingar veittar í sjö af þessum umdæmum, meðal annars um hvort kynferðisbrot hefði verið tilkynnt. Hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum fengust þær upplýsingar hins vegar ekki.

Hefur komið tilkynning um kynferðisbrot á Þjóðhátíð í ár?

„Ég vísa bara í fyrri yfirlýsingu lögreglustjóra um það mál,” sagði Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum í samtali við fréttastofu hinn 3. ágúst í fyrra.

„Fer eftir hvernig þú spyrð”

Er ekki ljóst að það er grundvallarmunur á vinnubrögðum lögreglunnar, annars vegar í Vestmannaeyjum og hins vegar hjá öðrum embættum?

„Nei, það tel ég ekki vera. Ég tel þetta vera spurning í rauninni hvernig svörin hafa verið gefin, eða spurningin verið lögð upp skilurðu. Það fer eftir því hvernig þú spyrð hvaða svör þú færð auðvitað,” segir Páley Borgþórsdóttir.


Tengdar fréttir

Unnsteinn Manuel vill ekki stríð Eyjamanna og fólks úr miðbænum

Unnsteinn Manuel Stefánsson talar máli tónlistarmanna sem tóku þá ákvörðun síðastliðinn fimmtudag að hætta við að spila á Þjóðhátíð vegna afstöðu Páleyjar Borgþórsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, varðandi kynferðisbrot.

Stingum ekki höfðinu í sandinn

Þrjár Eyjakonur sem koma annars vegar að skipulagi Þjóðhátíðar í Eyjum og hins vegar að forvörnum eru sammála um að það þurfi að opna samtalið um kynferðisafbrot og senda skýrari skilaboð um að þau líðist ekki á Þjóðhátíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×