Innlent

Full­yrða að framandi Fram­sóknar­menn Sig­mundar hafi verið Kín­verjar

Jakob Bjarnar skrifar
Sigmundur Davíð við Hagatorg umkringdur fréttamönnum og ljósmyndurum.
Sigmundur Davíð við Hagatorg umkringdur fréttamönnum og ljósmyndurum. visir/anton brink
Því er haldið fram að einu rúturnar sem komu að Háskólabíói áður en formannskjör Framsóknarmanna fór þar fram, hafi verið rútur sem voru að ferja kínverska ferðamenn.

Ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, oddvita Framsóknarflokksins í Norðurkjördæmi austur, þess efnis að skömmu áður en til kosninga kom í formannskjöri, hvar hann tókst á við Sigurð Inga, þess efnis að rútur hafi komið að Háskólabíói, hafa vakið nokkra furðu. Og út hafi streymt fólk sem hann hafði aldrei séð fyrr. Sigmundur Davíð gerir því skóna að þetta fólk hafi kosið í formannskjörinu og þá væntanlega Sigurð Inga Jóhannsson?

Málið sem vakið hefur upp spurningar er til umfjöllunar bæði á Twitter og Facebook. Fáir kannast við dularfullar rútuferðir við Hagatorg um klukkan ellefu síðastliðinn sunnudag.
„Svo allt í einu, þegar kominn var sunnudagur og klukkan orðin ellefu, þá komu rúturnar upp að Háskólabíói og birtist mikill fjöldi fólks sem ég hef aldrei séð áður þann tíma sem ég hef starfað í flokknum,“ sagði Sigmundur Davíð í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Enginn annar hefur gefið sig fram sem kannast við rútur framandi Framsóknarmanna. Og nú er kominn nýr og afar óvæntur flötur á þetta mál sem vakið hefur spurningar. Theódór Ingi Ólafsson, sem starfar í ferðaþjónustu hér á landi, er leiðsögumaður og fjölmiðlafræðingur, heldur því fram á Twitter að einu rúturnar sem voru á ferð við Hagatorg um klukkan ellefu á sunnudag hafi verið að ferja kínverska túrista. Hann hefur þetta eftir öðrum rútubílstjóranum en ferðamennirnir voru á leið í Hótel Sögu sem stendur gegnt Háskólabíói.

„Já, samkvæmt þessum bílstjóra sem ég talaði við. Hann fullyrti það að hann hafi verið þarna á svæðinu, frá SBA (Sérleyfisbílar Akureyrar) og annar til. Hann sagði að þarna hafi engar aðrar rútur verið og ég hef enga ástæðu til að trúa honum ekki,“ segir Theódór Ingi í stuttu samtali við Vísi.

Málið er einnig til umræðu í Facebook-hópi sem heitir Rútu og hópferðabifreiðaáhugamenn, en eins og nafnið gefur til kynna fylgjast menn þar grannt með ferðum langferðarbifreiða. Þar tekur til máls maður að nafni Kristján Arnarson sem virðist þekkja vel til:

Á Facebook reyna menn að brjóta til mergjar hvaða rútur voru á ferli við Hagatorg á sunnudaginn síðasta.
„Það voru þrjár rútur frá SBA við Sögu á þessum tíma með Kanadíska Kínverja. – En hvort þeir hafa kosið veit ég ekkert um.“

Svo öllu sé skilmerkilega til haga haldið skal tekið fram að umræða sem sprottið hefur í tengslum við þetta atriði í frásögn Sigmundar Davíðs hefur reynst á mjög grínaktugum nótum, þó það útaf fyrir sig gefi ekki tilefni til að efast um þær upplýsingar sem hafa verið settar fram um rútuferðir við Hagatorg að morgni sunnudags.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×