Lífið

Fullur ökumaður keyrði á Jennifer Lopez

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Jennifer Lopez og vinkona hennar, leikkonan Leah Remini, lentu í bílslysi um helgina í Malibu.

Jennifer birtir mynd af sér og Leuh á Instagram þar sem þær sjást sitja hlið við hlið í bíl söngkonunnar.

„Sitjum á rauðu ljósi, í góðu stuði rétt áður en einhver fullur kjáni keyrði aftan á okkur í nýja bílnum mínum!“ skrifar söngkonan við myndina og þakkar Guði fyrir að ekki fór verr.

Ökumaður undir áhrifum áfengis klessti aftan á bifreið Jennifer og samkvæmt fréttasíðunni TMZ voru tvö börn í aftursætinu. Ekki er vitað hvort það voru börn Jennifer, Max og Emme, sex ára, en enginn slasaðist í slysinu.

Ökumaðurinn flúði hins vegar af vettvangi en lögreglan fann hann stuttu síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×