Bíó og sjónvarp

Fullt út úr dyrum á heimsfrumsýningunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndin fer í almennar sýningar í Bíó Paradís frá og með kvöldinu í kvöld.
Myndin fer í almennar sýningar í Bíó Paradís frá og með kvöldinu í kvöld. vísir/getty
Heimsfrumsýning heimildamyndarinnar Njósnir, Lygar og fjölskyldubönd fór fram í gærkvöldi fyrir fullu húsi í Bíó Paradís.

Myndin vakti gríðarlega góð viðbrögð áhorfenda sem fylltu bíóhúsið, en margir í salnum áttu ættir að rekja til Ísafjarðar eða könnuðust við tímabilið sem myndin fjallar um.

Kvikmyndin var sýnd samtímis í Ísafjarðarbíó en kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson verður viðstaddur sýningu þar í kvöld, föstudagskvöld.

Myndin fer í almennar sýningar í Bíó Paradís frá og með kvöldinu í kvöld. Kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson rýfur þögnina og varpar ljósi á vel varið leyndarmál fjölskyldu sinnar sem leiddi til skelfilegra atburða sem áttu sér stað á Ísafirði fyrir rúmum 70 árum þegar breska hernámsliðið handtók afa hans, sem var vararæðismaður Breta, og ömmu ásamt 5 öðrum Vestfirðingum og kastaði í bresk fangelsi.

„Fortíðin getur varpað löngum skugga og haft flókin áhrif á líf okkar sem fæðumst jafnvel löngu síðar,“ segir Helgi en meðal mynda sem hann hefur áður gert, má nefna Guð blessi Ísland.- Myndin er sýnd með enskum texta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×