Fótbolti

Fullt hús stiga á móti einni bestu knattspyrnuþjóð heims

Óskar Ófeigur Jónsson í Amsterdam skrifar
Íslenska liðið fagnar hér sigurmarki leiksins.
Íslenska liðið fagnar hér sigurmarki leiksins. Vísir/Valli
Sögulegur 1-0 sigur Íslands á Hollandi í gær nánast gulltryggði sætið á EM. Íslenska liðinu nægir nú eitt stig í síðustu þremur leikjum sínum til að komast á sitt fyrsta stórmót.

Litla Ísland gerði líka í gær það sem engri knattspyrnuþjóð hefur tekist áður hvort sem það var að taka sex stig af Hollendingum í undankeppni stórmóts eða vera fyrsta þjóðin til að vinna hollenska landsliðið á Amsterdam Arena í undankeppni stórmóts.

 

Gylfi Þór Sigurðsson afgreiddi hollenska liðið alveg eins og í fyrri leiknum, þá með tveimur mörkum í fyrri hálfleik en nú með marki úr vítaspyrnu á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Hollendingar misstu nánasta öll helstu vopnin úr höndunum á átta mínútna kafla í fyrri hálfleiknum þegar Arjen Robben fór útaf meiddur og  Bruno Martins var rekinn af velli fyrir að slá Kolbein Sigþórsson.

Hátt uppi eftir sigurinn

„Við erum auðvitað mjög hátt uppi eftir þennan sigur enda örugglega mesta afrekið í sögu íslensk fótbolta. Við vorum heppnir að verða manni fleiri en við spiluðum leikinn eins og við vildum spila hann. Okkar leikmenn eiga mikið hrós fyrir að spila tvo leiki á móti einu besta sóknarliði Evrópu án þess að fá á sig mark. Það er eitthvað sem við getum verið mjög stoltir af,“ sagði Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara íslenska liðsins.

 

Staðan er vissulega frábær. Ísland situr áfram á toppi riðilsins og er nú með átta stiga forskot á Hollendinga sem sitja áfram súrir í þriðja sæti riðilsins. Tyrkir töpuðu á sama tíma stigum á móti Lettlandi og það eru bara Tékkland og Hollands sem geta náð íslenska liðinu.

Eitt stig á móti Kasakstan á sunnudaginn nægir til að koma Íslandi á EM. Holland getur þá bara náð Íslandi að stigum en verður alltaf neðar á verri stöðu í innbyrðisleikjum.

 

Féllu með íslenska liðinu

Hlutirnir féllu vissulega með íslenska landsliðinu á Amsterdam Arena en menn skapa sér sína eigin heppni með skipulagningu, dugnaði og trú. Það var nóg af öllu slíku innan íslenska landsliðsins í miðju aðalvígi hollenska fótboltans.

 

Leikurinn snérist á hvolf á ótrúlegum átta mínútna kafla sem endaði með að Bruno Martins fékk að líta rauða spjaldið á 33. mínútu. Átta mínútum áður hafði Robben yfirgefið völlinn meiddur. Á örfáum mínútum höfðu Hollendingarnir þar með bæði misst sinn besta mann (Arjen Robben) og öflugasta miðvörð (Bruno Martins) af velli.

 

Seinni hálfleikurinn var ekki orðinn gamall þegar Birkir Bjarnason fiskaði víti og Gylfi kláraði dæmið og skoraði framhjá Jasper Cillessen markverði og baulandi stúku. Það reyndist vera eina mark leiksins.

 

Þurfum einn sigur enn

Það heyrðist meira og meira í íslensku áhorfendunum sem virtust svífa hreinlega á skýi í stúkunni enda stórir hlutir að gerast.

 

„Okkar bíður erfiður og gjörólíkur leikur heima á móti Kasakstan eftir þrjá daga. Það væri afar gott að fá sér bjór í kvöld en við þurfum að halda báðum fótum á jörðinni og fara að hugsa um hinn leikinn. Staðreyndin er að við þurfum einn sigur í viðbót til að komast á EM og byrjum strax að undirbúa leikinn við Kasakstan,“ sagði Heimir.


Tengdar fréttir

Jafntefli gegn Kasakstan tryggir sæti á lokakeppni EM

Íslenska landsliðið þarf þrjú stig úr síðustu þremur leikjum sínum í undankeppni EM til þess að gulltryggja sætið á lokakeppni mótsins sem fer fram í Frakklandi næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×