Íslenski boltinn

Fullt af verkefnum fyrir íslenska dómara í Evrópudeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Jarl Jónsson sést hér dæma leik KR og ÍBV í Pepsi-deild karla.
Gunnar Jarl Jónsson sést hér dæma leik KR og ÍBV í Pepsi-deild karla. Vísir/Vilhelm
Þrír íslenskir knattspyrnudómarar fengu verkefni í Evrópu á fyrstu tveimur vikum júlímánaðar en þetta kemur fram á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.

Þóroddur Hjaltalín, Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og Gunnar Jarl Jónsson dæma allir í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA og verða því í eldlínunni þar eins og íslensku liðin FH, KR og Víkingur.

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og Gunnar Jarl Jónsson fara báðir í tvær ferðir því þeir eru báðir varadómari hjá hinum.

Þóroddur Hjaltalín, Áskell Þór Gíslason og Björn Valdimarsson munu dæma leik AUK Broughton FC frá Wales og NK Lokomotiva Zagreb frá Króatíu þann 2. júlí í Evrópudeildinni en Erlendur Eiríksson verður fjórði dómari.

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður einnig með flautuna á lofti en hann dæmir leik Klaipeda frá Litháen og PFC Beroe 1916 frá Búlgaríu þann 2. júlí. Aðstoðardómarar verða Gylfi Már Sigurðsson og Bryngeir Valdimarsson en Gunnar Jarl Jónsson verður fjórði dómari.

Þá mun Gunnar Jarl Jónsson dæma leik Solna frá Svíþjóð og VPS Vaasa frá Finnlandi í Evrópudeildinni. Með Gunnari verða Birkir Sigurðarson, Jóhann Gunnar Guðmundsson og Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður fjórði dómari. Leikurinn fer fram í Svíþjóð þann 9. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×