Tónlist

Fullt af nýjum nöfnum á Sónar: Páll Óskar treður upp

Stefán Árni Pálsson skrifar
Páll Óskar kemur fram á Sónar.
Páll Óskar kemur fram á Sónar. VÍSIR/ANÍTA BJÖRK JÓHANNSDÓTTIR/LÁRUS SIGURÐARSON
Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík fer fram í fjórða sinn dagana 18.-20. febrúar næstkomandi. Hátíðin mun fara fram á fimm sviðum í Hörpu, meðal annars í bílakjallara tónlistarhússins sem breytt verður í næturklúbb.

Alls munu rúmlega 70 hljómsveitir og plötusnúðar koma fram á hátíðinni. Forsvarsmenn hátíðarinnar hafa nú tilkynnt fleiri listamenn sem koma fram í Hörpu í upphafi næsta árs og verður greinilega mikill fjölbreytileiki við völd.

Til að mynda mun Pál Óskar Hjálmtýsson verða meðal þeirra innlendu listamanna sem koma mun fram á einu af stærri sviðum hátíðarinnar með sérútbúið show fyrir Sónar Reykjavík 2016. Þetta er í fyrsta sinn sem Páll Óskar kemur fram á tónleikahátíð sem þessari á Íslandi. Mun hann meðal annars frumflytja nýtt efni.

„Fyrst og fremst hlakka ég bara til að koma með sérhannað show á Sónar Reykjavík,“ segir Páll Óskar.

Einnig má nefna; Þýska danstónlistarstirnið Boys Noise (DE), rapparinn Angel Haze (US) frá Detroit í Bandaríkjunum, Ellen Allien (DE), Floating Points (UK) og danska teknó drottningin Courtsey (DK) eru meðal þeirra erlendu listamanna sem nú bætast við dagskrá Sónar Reykjavík 2016. 

Kiasmos dúó Ólafs Arnalds og Janus Rasmussen snýr aftur á Sónar Reykjavík eftir margrómaða tónleika sína á fyrstu Sónar hátíðinni hérlendis árið 2013 og hafa leikið á tónleikum um allan heim síðustu tvö ár, President Bongo fyrrum meðlimur GusGus sem nýlega gaf út sína fyrstu sóló breiðskífu Serengeti kemur fram á hátíðinni í febrúar ásamt Emotional Carpenters sem og ein skærasta stjarna íslenskrar tónlistar á erlendum vettvangi undanfarið ár; Bjarki.

Aðrir sem bætist við dagskrá Sónar Reykjavík 2016 eru; Ben UFO (UK), Lone (UK), Eloq (DK), Unkwon or DJ E.D.D.E.H. (DK), GKR, Karó, DJ Katla, Tandri & Julia Ruslanova og Intr0beatz.  

Í október var tilkynnt að eftirfarandi listamenn kæmu fram á Sónar; Hudson Mohawke (UK), Squarepusher (UK), Holly Herndon (US), Oneothrix Point Never (US), Black Madonna (US), Rødhåd (DE), Recondite (DE), AV AV AV (DK), Úlfur Úlfur, Apparat Organ Quarted, Sturla Atlas, Gangly, Vaginaboys og Skeng.

Uppselt hefur verið á Sónar Reykjavík síðustu tvö ár.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×