Heilsa

Fullnæging í ræktinni

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Hvernig langar ekki að gera ræktina meira fullnægjandi og jafnvel fá fullnægingu?

Nú er komin bókin The coregasm workout, skrifuð af dr. Debby Herbenick kynfræðingi.

Þetta er að verða að smá trendi, það að fá það í ræktinni, en í raun byggir þetta á því að spenna rétta vöðva, styrkja grindarbotninn og auðvitað gæti fólk óbeint, og beint, nuddað sér á ákveðinn hátt við læri (eða þess vegna æfingarbekkinn) en það er sem er vitað um fullnægingu er að það þarf ekki beina snertingu til að fá fullnægingu.

Það sést best á blautum draumum, þegar fólk fær fullnægingu í svefni án neinnar beinnar örvunar handa né annars.

Svo virðist sem þetta sé algengast þegar konur (menn hafa sjaldnar greint frá þessu) eru með innri læri og neðri magavöðva spennta en þá eru þær líka oft með vel þjálfaðan grindarbotn.

Það er spurning hvort þetta verði nýja líkamsræktaræðið, að skella sér í tíma í fullnægingarfimi?

Upp með rass, fót upp í loft, og svo niður með rassinn. Spennir neðri kvið, læri og grindarbotninn.Vísir/Skjáskot
Hér er ein æfing sem eru líklegar til árángurs og ánægju

Því meira sem vöðvarnir eru spenntir því líklegri ertu til að ná fullnægingu en ekki skemmir fyrir að hugsa um eitthvað sexíVísir/Skjáskot
Þá hefur spinning einnig virkað vel, sérstaklega þar sem hægt er að nudda sér við hnakkann sér til aukinnar ánægju


Tengdar fréttir

Fjölfullnæging

Mikið hefur verið spurt og spjallað um þá getu til að fá nokkrar fullnægingar en geta þetta allir?

Svona þjálfar þú grindarbotninn

Grindarbotninn styður við líffæri í grindarholi og passar að hægt sé að halda í sér þvagi og hægðum. Það er því mjög mikilvægt að styrkja hann reglulega með réttu æfingunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×