Innlent

Fullleitað í Bleiksárgljúfri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá leitinni í gær en gljúfrið má sjá á hægri hluta myndarinnar.
Frá leitinni í gær en gljúfrið má sjá á hægri hluta myndarinnar. Vísir/Magnús Hlynur/Kolbrún Magnúsdóttir
Leit stendur enn yfir að konu sem saknað er eftir sumarbústaðaferð í Fljótshlíð. Gert var hlé á leitinni á fimmta tímanum í nótt og fyrstu leitarhópar hófu svo aftur störf rétt fyrir klukkan átta í morgun.

Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að um 40 manns séu að störfum og verður fjölgað í leitarliðinu þegar líður á daginn. Stöðufundur með lögreglu var haldinn í morgun og tekin var ákvörðun um að útvíkka leitarsvæðið til austurs.

Búið er að leita afar ítarlega í Bleiksárgljúfrinu þar sem erlenda konan fannst látin. Er það mat manna, þ.m.t. köfunarhópa sem þar hafa verið að störfum, að það sé fullleitað.


Tengdar fréttir

Leita á víðara svæði

„Það hefur verið leitað nánast samfleitt. Sumir leitarhópar hvíldu sig einungis í um tvo tíma,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli.

Fannst látin í Bleiksárgljúfri

Erlend kona fannst látin í Bleiksárgljúfri um 25 kílómetra frá Hvolsvelli í gærkvöldi og leit stendur yfir að íslenskri konu.

Leitarsvæðið stækkað

Um 80 manns taka nú þátt í leit að íslenskri konu sem hefur verið týnd frá því á laugardagskvöldið.

Erfið leitarskilyrði í Bleiksárgljúfri

Víðtæk leit stendur nú yfir að íslenskri konu í innanverðri Fljótshlíð í Rangárvallarsýslu, þar sem erlend vinkona hennar fannst látin í gær.

Leit heldur áfram í nótt

Um 170 manns taka þátt í leitinni en björgunarsveitir frá Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu byrjuðu smátt og smátt að tínast upp Fljótshlíðina upp úr hádegi í dag til að taka þátt í henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×