Gagnrýni

Fullkominn endir á ATP

Haraldur Guðmundsson skrifar
Liðsmenn Interpol sýndu allar sínar bestu hliðar á síðasta degi ATP á laugardag.
Liðsmenn Interpol sýndu allar sínar bestu hliðar á síðasta degi ATP á laugardag. VÍSIR/ANDRI MARINÓ
Tónleikar 

Laugardagskvöld

Interpol

ATP-tónlistarhátíðin



Þegar liðsmenn New York-sveitarinnar Interpol hófu að spila í gömlu flugskýli á Ásbrú höfðu þeir á tæpum einum og hálfum mánuði troðið upp á yfir 20 tónleikum í Bandaríkjunum og Evrópu.

Hljómsveitin lék 16 lög í Reykjanesbæ og fyrstu tvær plötur hennar, Turn on the Bright Lights og Antics, voru þar í aðalhlutverki. Áhorfendur fengu einnig að heyra þrjú ný lög af El Pintor sem er væntanleg í haust.

Stemningin í skýlinu jókst með hverju lagi og bandið hljómaði óaðfinnanlega. Söngvarinn og gítarleikarinn Paul Banks, gítarleikarinn Daniel Kessler og trommarinn Sam Fogarino skiluðu sínu og afleysinga-bassaleikarinn Brad Truax var góð viðbót. Eftir 14 lög þökkuðu þeir fyrir sig og kvöddu.

Salurinn heimtaði meira og heyra mátti áhorfendur kalla eftir laginu Stella was a Diver and She Was Always Down. Interpol sneri aftur og tók tvö lög. Í því seinna mætti Stella á sviðið og tónleikarnir voru fullkomnaðir. 

Niðurstaða:

Frábærir tónleikar þar sem Interpol blandaði sínum helstu slögurum við lög sem aðeins harðir aðdáendur kunna textana við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×