Fótbolti

Fullkomin endkurkoma Ronaldo gegn uppeldisfélaginu | Sjáðu mörkin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldo jafnaði metin þegar mínúta var til leiksloka.
Ronaldo jafnaði metin þegar mínúta var til leiksloka. vísir/getty
Cristiano Ronaldo minnti á sig þegar hann skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í leik Real Madrid gegn Sporting Lissabon í Meistaradeild Evrópu í gær.

Bruno Cesar hafði komið Sporting óvænt yfir á 48. mínútu en fram að lokamínútunum hafði Ronaldo haft fremur hægt um sig.

Portúgalinn var að spila sinn fyrsta heila leik eftir að hann meiddist í úrslitaleik EM í sumar og náði ekki að sýna sitt rétta andlit framan af leik gegn uppeldisfélaginu.

En hann fékk dauðafæri til að skora er hann skaut í stöng af stuttu færi um sjö mínútum fyrir leikslok. Ronaldo krækti svo í aukaspyrnu rétt utan teigs og skoraði úr henni glæsilegt jöfnunarmark á 89. mínútu.

Þrátt fyrir að Ronaldo hafði oft spilað betur en framan af leik ákvað Zinedine Zidane, stjóri Real, að taka fremur Gareth Bale og Karim Benzema af velli í síðari hálfleik. Það átti eftir að borga sig.

Það var svo annar varamannanna, Alvaro Morata, sem skoraði sigurmark Real með skalla á 95. mínútu.

Sjáðu samantekt úr leiknum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×