Fótbolti

Fuchs: Við munum sækja meira á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Christian Fuchs á blaðamannafundinum í dag.
Christian Fuchs á blaðamannafundinum í dag. vísir/epa
Christian Fuchs, fyrirliði austurríska landsliðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi á Stade de France í dag og var þar spurður um leikinn gegn Íslandi í F-riðli EM í Frakklandi sem fram fer á morgun.

„Við munum skapa fleiri færi í þessum leik en gegn Ungverjalandi,“ sagði Fuchs en Austurríki tapaði þeim leik, 2-0, og gerði svo markalaust jafntefli gegn Portúgal. Austurríki verður því að vinna leikinn á morgun til að komast áfram í 16-liða úrslitin.

„Við munum gefa allt í leikinn og berjast til síðustu sekúndu. Ég er sannfærður um að við getum gengið frá leiknum sem sigurvegarar. Fyrsta skrefið hjá okkur var að ná jafntefli gegn Portúgal og ef við náum að spila þann sóknarleik sem við viljum þá mun þetta ganga upp.“

David Alaba er lykilmaður í liði Austurríkis en hann hefur ekki verið upp á sitt besta á mótinu til þessa.

„Hann fær þessa athygli vegna þess að hann spilar með Bayern og hefur unnið Meistaradeild Evrópu. En mér finnst það ekki sanngjarnt. Hann er bara hluti af liðinu og okkur finnst að liðið sjálft sé stjarnan. Ef hann stendur sig vel þá mun það hjálpa liðinu. Ég hef trú á því að allir í liðinu munu standa sig vel á morgun,“ sagði hann.

Fuchs óttast ekki að það sé allt undir í leiknum gegn Íslandi á morgun.

„Við erum allir vanir því að spila mikilvæga leiki, hvort sem er um titla eða fall. Yfir langan feril venst maður því að spila undir pressu.“

Hann vildi lítið segja um íslenska liðið en sagði það öflugt lið sem bæri að varast.

„Ísland er nýkomið fram á sjónarsviðið í alþjóðlegum fótbolta en við líka. Það má ekki gleyma því. Hvað finnst mér um Ísland? Þetta er eyja í norðri sem hefur átt nokkra góða fótboltamenn, sérstaklega í ensku úrvalsdeildinni.“

Marko Arnautivic sagði í austurrískum fjölmiðlum að hann hafi spilað nánast sem varnarmaður á vinstri kanti austurríska liðsins gegn Portúgal.

„Hann gerði það vel og hjálpaði okkur mikið. En ég er viss um að hann fái meiri pláss á morgun. Við munum reyna að búa til pláss fyrir hann.“

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Strákarnir lentir í París

Íslenska landsliðið er komið til höfuðborgar Frakklands þar sem það mætir Austurríki í lokaumferð riðlakeppni EM 2016 á morgun.

Hafa unnið sér inn traust þjóðarinnar

Strákarnir okkar mæta Austurríki í lokaumferð riðlakeppni EM á Stade de France á miðvikudaginn. Náist ekki að minnsta kosti punktur í París er frumraun Íslands á EM í Frakklandi lokið. Íslenska liðið ætlar sér hinsvegar áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×