Bíó og sjónvarp

Frumsýnt á Vísi: Sýnishorn úr Blóðberg

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Vesturport kynnir Blóðberg í leikstjórn Björns Hlyns Haraldssonar sem einnig skrifar handritið. Rakel Garðarsdóttir og Ágústa M. Ólafsdóttir framleiða myndina en hún er unnin í samvinnu við 365 og Pegasus. Meðal leikara í myndinni eru Hilmar Jónsson, Harpa Arnardóttir, Hilmar Jensson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, María Heba Þorkelsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson.

Hulda Halldóra Tryggvadóttir sá um búninga og Kristín Júlla Kristjánsdóttir um hár og förðun. Frosti Jón Runólfsson klippti myndina og Elli Cassata tók myndina upp. Myndin er byggð á leikritinu Dubbeldusch eftir Björn Hlyn Haraldsson. 

Myndin segir frá hinni hefðbundnu íslensku fjölskyldu sem á yfirborðinu er nánast fullkomin. Fjölskyldufaðirinn bjargar samlöndum sínum með skrifum á sjálfshjálparbókum á meðan móðirin bjargar fólki á spítalanum þar sem hún vinnur sem hjúkrunarkona. En hvorugt þeirra hefur kjark til að bjarga sjálfu sér. Þau lifa og hrærast í lífi leyndarmála sem einn daginn banka uppá og þá breytist allt.

Myndin verður frumsýnd páskadag á Stöð 2 og fer í sýningu í Sambíóunum 10. apríl.


Tengdar fréttir

Blóðberg heillar Bandaríkjamenn

Íslenska kvikmyndin Blóðberg verður endurgerð sem sjónvarpssería í Bandaríkjunum, ef allt gengur eftir. Umboðsskrifstofan ICM Partners kom að máli við framleiðendurna, Vesturport, vegna myndarinnar eftir kvikmyndahátíðina í Gautaborg, þar sem myndin var sýnd sem verk í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×