Lífið

Frumsýnt á Vísi: Myndband við lagið Flesk

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Myndbandinu við Flesk er leikstýrt af Sunnu Axelsdóttur.
Myndbandinu við Flesk er leikstýrt af Sunnu Axelsdóttur.
Lagið er smíð tónlistarkonunnar Katrínar Helgu Andrésdóttur sem einna þekktust er fyrir að vera meðlimur í Reykjavíkurdætrum og Hljómsveittri og með henni eru þau Sóley og Helgi Björnsson.

Lagið fjallar um dýraníð og segir Katrín að vissu leyti um hugvekju að ræða sem hún hafi reynt að gera sem aðgengilegasta. „Ég vissi að Sóley væri með ástríðu fyrir þessu eins og ég því hún er virk inni á vegan-samfélagsmiðlum. Svo vildi ég fá einhvern sem svona mótvægi, sem myndi ná til annars hóps og gæti verið svona svolítill talsmaður kjötætunnar,“ segir Katrín en hún fékk Helga í það verk.

Myndbandinu við Flesk er leikstýrt af Sunnu Axelsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×