Lífið

Frumsýnir soninn á Twitter

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Breska leikkonan Thandie Newton deilir mynd af nýfæddum syni sínum, Booker Jombe Parker, á samfélagsmiðlinum Twitter. Hún notar tækifærið og óskar aðdáendum sínum gleðilegra páska.

Thandie er gift Ol Parker en þetta er þeirra þriðja barn. Þau eiga einnig dótturina Ripley, þrettán ára, og soninn Nico, níu ára.

Thandie og Ol giftu sig árið 1998.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×