Lífið

Frumsýningardagur sjöundu seríu Game of Thrones opinberaður með afar forvitnilegum hætti

Birgir Olgeirsson skrifar
160 þúsund manns fylgdust með klukkustundar langri útsendingu á Facebook.
160 þúsund manns fylgdust með klukkustundar langri útsendingu á Facebook. Vísir/Getty
Sjöunda þáttaröð af Game of Thrones verður frumsýnd 16. júlí næstkomandi. Greint var frá þessu í beinni útsendingu á Facebook-síðu þáttanna þar sem aðdáendur fylgdust með þegar ísblokk var brædd með eldi. 

Þegar ísinn hafði verið bræddur kom í ljós frumsýningardagurinn en þetta stóð yfir í um klukkustund. 

160 þúsund manns fylgdust með þessar útsendingu sem var í þremur pörtum. Þeir sem fylgdust með voru hvattir til að skrifa „fire“ í athugasemd en þegar það var gert bættist í eldinn.

Þegar ísinn hafði verið bræddur var spiluð stikla úr sjöundu þáttaröðinni sem sjá má hér fyrir neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×