Tónlist

Frumsýning á Vísi: Vatnsslagur með brunaslöngu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónskáldið og listamaðurinn Páll Ivan frá Eiðum frumsýnir myndband við lagið Expanding á Vísi í dag. 

Myndbandið var tekið uppá Jónsmessunótt í sumar en leikarar í myndbandinu eru Páll sjálfur og kona hans, Elín Anna Þórisdóttir.

Páll Ivan er einn af stofnmeðlimum tónskáldahópsins SLÁTUR og hefur komið fram með ýmsu tónlistarfólki úr öllum áttum, þar með talið Benna Hemm Hemm, Borko, Kríu Brekkan, Slowblow, Múm og 200.000 Naglbítum.

Leikstjóri myndbandsins er Elvar Gunnarsson en hann hefur verið starfandi leikstjóri og handritshöfundur í rúman áratug. Hann hefur gert myndbönd fyrir listamenn á borð við Aaron Smith, Zebra Katz, Pollapönk og Maus. Einnig hefur hann leikstýrt kvikmynd í fullri lengd, Einn, sem frumsýnd verður á næsta ári.

Drífa Líftóra Thoroddsen hannaði búninga í myndbandinu, klipping var í höndum Sigurgeirs Helgasonar og um kvikmyndatöku sá Hilmir Berg Ragnarsson. Myndbandið er framleitt af Guðfinni Ými Harðarsyni fyrir 23 Frames.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×