Tónlist

Frumsýning á Vísi: Sjóðheitur Tangó frá Bergljótu Arnalds

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bergljót fer á kostum í myndbandinu.
Bergljót fer á kostum í myndbandinu. vísir
Bergljót Arnalds hefur sent frá sér nýtt myndband við lagið Tango of Love and Hate. Myndbandið er tekið upp á lestarstöð á Kastrup flugvelli og einnig hér á landi. Bergljót dansar tangó við Aldo Tranum Velasquez em er suðuramerískur atvinnudansari, búsettur í Kaupmannahöfn.

„Ég kann bara grunnsporin í tango og það var því stressandi að eiga allt í einu að dansa við þennan flotta atvinnudansara. Ég fékk bara hálftíma æfingu og svo var strax rúllað í tökur,“ segir Bergljót um upplifun sína.

„Það var líka mjög sérstakt að standa á brautarpallinum á Kastrup á mesta annartíma og fara allt í einu að dansa. Við gátum ekkert heyrt í tónlistinni því hávaðinn frá lestunum var svo mikill. Við þurftum því að halda taktinum eftir minni eins og mögulegt var.“

Bergljót segir að stundum hafi fólk starað undrandi á þau.

„En það var nauðsynlegt að láta það ekki trufla sig svo hægt væri að ná tökunum. Þetta voru samt ekki erfiðustu tökurnar fyrir þetta myndband, maður reynir bara alltaf að gera sitt besta hverjar sem aðstæðurnar eru.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×