Bíó og sjónvarp

Frumsýning á Vísi: Óhugnanleg stikla úr Grimmd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Um er að ræða íslenska spennumynd sem segir frá því þegar tvær ungar stelpur hverfa sporlaust af leikvelli í Árbænum.
Um er að ræða íslenska spennumynd sem segir frá því þegar tvær ungar stelpur hverfa sporlaust af leikvelli í Árbænum.
Kvikmyndin Grimmd verður frumsýnd þann 21. október en með aðalhlutverk í myndinni fara þau Margrét Vilhjálmsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Nú frumsýnir Vísir glænýja stiklu úr myndinni sem er greinilega ekki ætluð börnum.

Með önnur hlutverk í Grimmd fara: Helgi Björnsson, Júlíana Sara Gunnarsdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Salóme Gunnarsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pétur Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason.

Um er að ræða íslenska spennumynd sem segir frá því þegar tvær ungar stelpur hverfa sporlaust af leikvelli í Árbænum. Stúlkurnar finnast látnar í Heiðmörk og í einbeittri rannsókn í leit að sökudólgum fléttast saman nokkrar sögur þegar hræðileg atriði í máli stúlknanna koma upp á yfirborðið.

Þjóðfélagið fer á annan endann vegna málsins og reyndustu rannsóknarlögreglumenn landsins, þau Edda Davíðsdóttir (Margrét Vilhjálmsdóttir) og Jóhannes Schram (Sveinn Ólafur Gunnarsson) eru kölluð til. Þau eru bæði staðráðin í að leysa málið en þurfa að etja kappi við tímann þegar hvimleið atvik úr fortíðinni líta dagsins ljós og erfið rannsóknin flækist enn frekar. Hér að neðan má sjá stikluna úr Grimmd.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×