Bíó og sjónvarp

Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr íslenskum sálfræðitrylli

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir frumsýnir í dag fyrstu stikluna úr íslenska sálfræðitryllinum Grafir og bein sem frumsýndur verður 3. október á þessu ári.

Myndin fjallar um hjónin Gísla og Sonju sem höfðu allt; peninga, ást og gullfallega dóttur. En þegar dóttir þeirra Dagbjört deyr er veröld þeirra kippt undan þeim.  Í ofanálagi stendur Gísli í miðjum réttarhöldum út af ólöglegum kaupum og lánveitingum sem áttu sér stað í góðærinu.

Þegar Sigurður, bróðir Gísla, og kona hans deyja ákveða Gísli og Sonja að taka dóttur þeirra, Perlu, í fóstur. Þau sækja hana í afskekktu húsi og þá fara undarlegir hlutir að gerast.

Það er Anton Sigurðsson sem er handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar en þetta er fyrsta myndin í fullri lengd sem hann leikstýrir.

Í aðalhlutverkum eru þau Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Hlynur Haraldsson en það er Erlingur Jack Guðmundsson, eigandi Ogfilms, sem framleiðir myndina. Pegasus og Mystery eru meðframleiðendur.

Stikluna má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Fjölskylduhrollvekja

Íslensk hrollvekjumynd verður frumsýnd í sumar. Mikil tenging er á milli aðstandenda myndarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×