Bíó og sjónvarp

Frumsýning á nýrri stiklu: Tvær fjórtán ára stelpur verða vitni að morði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Týndu Stelpurnar er kvikmynd eftir Lovísu Láru Halldórsdóttur sem var tekin upp í sumar. Myndin fjallar um tvær fjórtán ára bestu vinkonur sem verða vitni að morði.

En þegar þær fara að rannsaka málið sjálfar kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist. Nú hefur verið sett af stað söfnun á KarolinaFund til að safna fé fyrir eftirvinnslu kvikmyndarinnar.

Týndu Stelpurnar falla um Birnu og Telmu sem hafa verið bestu vinkonur síðan þær voru litlar. Þær eru andstæður og koma frá ólíkum aðstæðum en eiga það sameiginlegt að leiðast fjölskyldulífið.

Til þess að sleppa frá leiðinlegum raunveruleika sínum, stytta stelpurnar sér stundir með því að njósna um nágranna sína og búa til sögur. Þegar stelpurnar verða vitni að morði reyna þær að rannsaka málið sjalfar.

Þær vita þó ekki að sú ákvörðun mun ekki bara reyna á vináttu þeirra, heldur einnig stefna lífi þeirra í hættu.

Lovísa Lára Halldórsdóttir, leikstjóri, útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2014 og hefur síðan unnið að fjöldamörgum verkefnum, þar með talið stuttmyndirnar Smástirni og Hrellir en báðar myndirnar voru sýndar á kvikmyndahátíðum út um heim allan og unnu til verðlauna. Hér að neðan má sjá sýnishorn úr kvikmyndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×