Tíska og hönnun

Frumsýning á nýrri haust- og vetrarlínu Geysis - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Íslenska fatamerkið Geysir frumsýndi glænýja haust - og vetrarlínu með pompi og pragt í Iðnó á föstudagskvöldið en um var að ræða fyrstu sýningu Geysis af þessu tagi. Sýningin var í beinni útsendingu á Vísi er það í fyrsta skipti sem íslensk fatalína er sýnd í beinni á vef með þessum hætti.

Fatalínan var síðan komin í sölu í verslunum Geysis daginn eftir.

Yfirhönnuður Geysis er Erna Einarsdóttir en eitt helsta sérkenni línunnar er íslenska ullin. Erna nam við Gerrit Rietveld Akademíuna í Amsterdam og Central Saint Martins í London. Hún sneri aftur til Íslands og hóf störf hjá Geysi árið 2013 eftir stutt stopp í París hjá Saint Laurent þar sem hún starfaði undir Hedi Slimane. Vetrarfatalínan 2016 er önnur fatalína hennar fyrir Geysi.

Fatnaðurinn er innblásinn af íslensku konunni og hennar daglega lífi í borginni, með sterkum skírskotunum í íslenska prjónahefð. Geysir hefur alla tíð lagt áherslu á gæði og með nýju fatalínunni blandast hágæðaefni líkt og móher, silki, alpaca og hör fallega innan um íslensku ullina. Á sama tíma og Erna leitar í íslenska fatahefð er fatnaðurinn hannaður með nútíma konu í huga.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×