Tónlist

Frumsýning: Olíubornir kraftakallar í nýju myndbandi Emmsjé Gauta

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flott myndband frá rapparanum vinsæla.
Flott myndband frá rapparanum vinsæla.
Rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, frumsýnir í dag nýtt myndband á Vísi. Myndbandið er við lagið Svona er þetta og er lagið á nýjustu plötu kappans, Sautjándi nóvember.

Myndbandið er virkilega skemmtilegt og er það leikstýrt af Magnúsi Leifssyni myndatökumaðurinn Árni Filippusson sá um allar upptökur.

Platan Sautjándi nóvember kom út 17. nóvember síðastliðinn en hér að neðan má sjá þetta skemmtilega myndband. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×