Lífið

Frumsýning: Nýtt lag og myndband með Steinari

Söngvarinn Steinar frumsýnir nú myndband fyrir nýja lagið hans Do It All Again.

Redd Lights sjá um taktinn en að sögn Steinars sendi hann þeim sína útgáfu af laginu fyrir nokkru.

„Þeir tóku sitt „twist“ á það og gerðu þéttan takt,“ segir Steinar en lagið umrædda er R&B popplag.

Iris Films vinnur myndbandið fyrir Steinar. „Þeir eru jafnaldrar mínir og ótrúlega færir drengir,“ segir hann.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið:









Fleiri fréttir

Sjá meira


×