Viðskipti erlent

Frumsýna kvikmynd í sýndarveruleika

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Fyrirtækið Oculus VR, sem vinnur að þróun sýndarveruleikagleraugna mun frumsýna í dag, teiknimynd sem horfa á með sýndarveruleikagleraugum fyrirtækisins. Þannig munu áhorfendur myndanna standa í miðju kvikmyndanna og upplifa sig sem þátttakenda.

Teiknimyndin Lost er um fimm mínútur að lengd og verður sýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í dag.

Brendan Iribe, forstjóri Oculus segir Forbes að hugmyndin hafi fyrst komið upp þegar fyrirtækið sýndi þekktum leikstjóra sýndarveruleikagleraugu fyrirtækisins. Þegar leikstjórinn tók af sér gleraugun sagði hann: „Brendan, gerum kvikmynd. Hvernig gerum við það?“

Iribe segist ekki hafa getað svarað spurningu leikstjórans og því hafi verið farið í að finna svör.

Oculus VR stofnaði kvikmyndafyrirtækið Story Studio, sem ætlað er að framleiða kvikmyndir fyrir sýndarveruleika. Síðasta árið hefur fyrirtækið ráðið til sín vana menn frá Pixar og öðrum framleiðendum til að þróa tæknina áfram og ýta undir áhuga annarra kvikmyndargerðarmanna á tækninni.

Hugmyndin að kvikmyndafyrirtækinu kom upp áður en Facebook keypti Oculus í fyrra, en haft er eftir Irbe á vef TechCrunch að stærð Facebook hafi hjálpað mjög við uppsetningu Story Studio.

Þrátt fyrir að myndin sé einungis fimm mínútur að lengd getur áhorfandinn stöðvað hana hvenær sem er til að skoða betur einstök atriði. Þá getur umhverfið brugðist við áhorfandanum.

Á vef Forbes segir að þrátt fyrir að Lost sé fyrsta mynd Oculus, þá sé hún ekki sú fyrsta sinnar tegundar. Einstaklingar sem og önnur fyrirtæki hafa tekið upp myndir og gert teiknimyndir sem gerðar eru fyrir sýndarveruleika.


Tengdar fréttir

Upplifa Ísland í sýndarveruleika

Sýndarveruleikaframleiðandinn Verge hefur nú gefið út tölvuleikinn Iceland, sem hægt er að spila með sýndarveruleikabúnaðinum Oculus Rift.

Er sýndarveruleiki framtíð tölvuleikja, aftur?

Tæknifyrirtæki hafa sett mikið fjármagn í þróun sýndarveruleikabúnaðar á undanförnum árum. Leikir eru þó einungis byrjunin og stefnt er að því að innleiða sýndarveruleika í daglegt líf fólks.

Helstu tæki ársins 2014

Vísir fer yfir nokkur af helstu raftækjunum sem litu dagsins ljós á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×