Innlent

Frosti vonar að tillaga Vinstri grænna nái fram að ganga

Heimir Már Pétursson skrifar
Stjórnarandstaðan telur nauðsynlegt að Alþingi láti rannsaka umfang aflandsfélaga sem tengjast Íslandi og leggja Vinstri grænir til að forseti Alþingis skipi rannsóknarnefnd til að kortleggja það. Formaður Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vonar að tillagan nái fram að ganga.

Þingsályktunartillaga Vinstri grænna kom til fyrri umræðu á Alþingi í dag. En þingmenn flokksins segja atburði síðustu vikna sýna að full nauðsyn sé á að ná utan um eignarhald Íslendinga á aflandsfélögum og þeir krefjast þess jafnframt að fjármálaráðherra segi af sér vegna  tengsl sín við slíkt félag.

„Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna sagði skattaskjól vera vettvang skattsvika í framsöguræðu sinni í dag.

„Að slíkri stærðargráðu að enginn getur í raun og veru áttað sig á því umfangi. Skattaskjól eru staður þeirra sem vilja fría sig frá skyldum við sitt upprunasamfélag,“ sagði Svandís.

Vinstri grænir vilja að nefnd fimm sérfræðinga verði skipuð og hún skili af sér bráðabirgðaskýrslu í september og lokaskýrslu í desember á þessu ári.

Þingflokkur Samfylkingarinnar lagði einnig fram þingsályktun í dag um að Alþingi feli ríkisstjórninni að beita sér fyrir alþjóðlegum við­skipta­þvingunum gagnvart lágskattaríkjum  til að koma í veg fyrir leynd yfir eignarhaldi félaga í lágskattaríkjum og koma í veg fyrir skattaundanskot.

Frosti Sigurjónsson þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar sagði afstöðu hans til skattaskjóla mjög skýra.

„Ég er andvígur þeirra starfsemi og ég tel nauðsynlegt að Ísland verði hvorki meira né minna í í fararbroddi í því að berjast gegn starfsemi þeirra,“ sagði Frosti.

Fyrsta skrefið væri að gera sér grein fyrir umfangi vandans hér á Íslandi og í því ljósi væri tillaga Vinstri grænna áhugaverð.

„Og margt í henni sem ég tel að við getum stutt. Ég veit að í meðförum þingsins mun hún eingöngu batna og ég vona að hún nái fram að ganga. Þannig að það er mín afstaða til málsins,“ sagði Frosti Sigurjónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×