Lífið

Frosti og Helga Gabríela setja glæsiíbúð sína á sölu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega smekkleg íbúð.
Virkilega smekkleg íbúð.
Útvarpsmaðurinn Frosti Logason og unnusta hans, Helga Gabríela, hafa sett íbúð sína við Birkimel á sölu og er kaupverðið 39,9 milljónir króna. Fasteignamat eignarinnar er 28,8 milljónir og var blokkin byggð árið 1948.

Um er að ræða 78 fermetra fallega og bjarta íbúð á besta stað. Íbúðin er þriggja til fjögurra herbergja á efstu hæð, og fylgir eitt svefnherbergi í risi.

Í íbúðinni er eitt svefnherbergi, ein stofa og ein borðastofa sem hægt er að nýta sem svefnherbergi. Úr stofunni er útgengt út á svalir með fallegu útsýni. Hér að neðan má sjá myndir innan úr íbúðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×