Lífið

Frönsk áhrif í miðbæ Reykjavíkur

Guðný Hrönn skrifar
Frönsku áhrifin eru augljós í íbúðinni.
Frönsku áhrifin eru augljós í íbúðinni. MYND/Ásmundur J. Sveinsson
Hjónin Guðrún og Einar Sörli gerðu upp glæsilega íbúð í miðbænum á átta mánuðum.

Guðrún smellti þessari mynd af í vinnuferlinu.
„Við rifum allt út úr þessari íbúð sem hægt var að losa með góðu móti. Létum breikka og sérsmíða alla gólflista og gerefti, breikkuðum tvö hurðargöt sem voru á ganginum til að auka rýmið, létum saga út franskar svalir í eldhúsinu. Settum inn nýja eldhúsinnréttingu og nýtt bað, ný gólfefni.“

„Að baki liggja óteljandi vinnustundir langt fram eftir kvöldum, kvöld eftir kvöld. Það voru margir góðir menn, jötnar og verndarenglar sem hjálpuðu okkur,“ segir Guðrún.

Guðrún og Einar Sörli prófuðu að mála stofuna dökka en sáu svo að hvítt hentaði betur.MYND/Ásmundur J. Sveinsson
Spurð út í hvaðan innblásturinn kom segir Einar Sörli: „Guðrún bjó lengi í París og þekkir vel íbúðir í Haussmann-stíl þar sem önnur hæðin er aðalhæðin í húsinu og alltaf með meiri lofthæð en aðrar hæðir. Við höfum komið inn í margar íbúðir í Haussman-stíl í París og okkar íbúð minnti okkur mikið á þær. Í henni er mikil lofthæð og fallegir skrautlistar í loftunum, langur gangur skiptir henni upp, gluggarnir eru stórir og svo eru tvær samliggjandi stofur með rennihurð á milli sín. Við unnum út frá þessu.“

Guðrún og Einar Sörli eru himinlifandi með útkomuna þegar þau líta yfir heildarmyndina. Það sem auðveldaði vinnuferlið er að þau eru með svipaðan smekk.
Aðspurð hvort þau séu með svipaðan smekk þegar kemur að innanhússhönnun segir Guðrún: „Já, en Einar Sörli er töffarinn hjá okkur. Hann átti til dæmis tvær kristalsljósakrónur og heilt iittala-stell þegar við kynntumst.“

Grár litur tengir rými íbúðarinnar saman.MYND/Ásmundur J. Sveinsson
Þegar Einar Sörli og Guðrún líta yfir íbúðina þá finnst þeim frönsku svalirnar í eldhúsinu standa upp úr. „Þær opna íbúðina mjög mikið og breyta henni töluvert. Það er gaman að vera með svaladyrnar opnar og heyra þegar kirkjuklukkurnar hringja eða þegar álftir fljúga yfir með vængjaþyt í átt að Tjörninni, og horfa inn á milli bakgarðana og sjá alla krakkana leika sér,“ segir Guðrún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×