Skoðun

Frjáls úr höftum

Unnur Brá Konráðsdóttir skrifar
Einstaklingsfrelsi og atvinnufrelsi með hagsmuni allra stétta fyrir augum eru þeir hornsteinar sem farsælt er að byggja öflugt samfélag á. Aukið frelsi í viðskiptum bætir ekki aðeins möguleika atvinnulífsins til að vaxa og þróast heldur leiðir einnig af sér aukna samkeppni, neytendum til hagsbóta. Á undanförnum áratugum hafa margir jákvæðir áfangar náðst í átt að auknu viðskiptafrelsi og heyrir nú til undantekninga ef ríki eða sveitarfélög standa í verslunarrekstri. Sá þáttur sem mest áhrif hefur haft í íslensku samfélagi í átt til aukins viðskiptafrelsis er aðild Íslands að EES-samningnum. Í kjölfar hans má segja að frelsi í viðskiptum hafi átt sviðið.

Við sem aðhyllumst frelsi í viðskiptum hljótum öll að fagna þeirri umræðu sem skapast hefur um sölu áfengis, lyfja og landbúnaðarafurða í kjölfar frétta af áhuga verslunarkeðjunnar Costco á að opna verslun á Íslandi. Ég tel að afnema eigi einkasölu ríkisins á áfengi og heimila öðrum en apótekum að selja lyf í smásölu en ljóst er að breytingar í átt til aukins viðskiptafrelsis verða alltaf almennar en ekki sértækar fyrir eina verslunarkeðju.

Hvað landbúnaðinn varðar þá er hollt fyrir okkur að taka umræðu um kosti og galla núverandi fyrirkomulags. Ef við teljum rétt að viðhalda því óbreyttu þá þarf að rökstyðja það vel. Matvælaöryggi er mikilvægt sem og byggðasjónarmið og auðvitað eigum við að gera ákveðnar gæðakröfur til þeirra matvæla sem flutt eru til landsins. Í nútímanum gengur hins vegar ekki að halda því fram að allt sem komi frá útlöndum leiði af sér heilsubrest og hörmungar. Ef við teljum íslenskar afurðir margfalt betri og hollari en aðrar hvers vegna teljum við þá sjálfgefið að þær vörur fari halloka í samkeppni við erlenda vöru af margfalt minni gæðum?

Ein er þó sú hindrun sem yfirskyggir allar aðrar hindranir í íslensku viðskiptalífi. Það eru gjaldeyrishöftin. Forsenda þess að fyrirtæki og einstaklingar í landinu geti skapað aukin verðmæti er afnám þeirra. Þess vegna er stærsta verkefni okkar Íslendinga á næstu mánuðum að afnema gjaldeyrishöftin. Frjáls úr þeim höftum eru okkur allir vegir færir.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×