Lífið

Frikki Weisshappel: Býður upp á frían bjór í Köben í kvöld

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Frikki Weiss vaknaði glaður í morgun... og býður nú í partý!
Frikki Weiss vaknaði glaður í morgun... og býður nú í partý! Vísir/DR
Friðrik Weisshappel er svo yfir sig ánægður með gengi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta að hann ætlar að bjóða öllu Íslendingum í Kaupmannahöfn í drykk í kvöld. Hátíðin hefst klukkan 18:30 á staðartíma og fer fram á Laundromat Café sem staðsett er í Elmegade 15 í Norrebro.

Á sama tíma mun sjónvarpsþátturinn TV Avisen sem sýndur er á DR senda út beint frá staðnum en fjallað var um málið á vef DR í dag.

„Sál okkar er svolítið aum eftir erfiða tíma vegna Panamaskjalana, hrunið og lélegra stjórnmála. Allt saman hlutir sem við höfum skammast okkar fyrir. Þess vegna var frábært að fá eitthvað sem er svona hreint út í gegn, sem við höfum unnið fyrir og eigum skilið,“ segir Friðrik í viðtalinu.

Friðrik segist hafa unnið bunka af 20 króna seðlum (dönskum auðvitað) í því að hafa veðjað á 2-1 sigur Íslands í leiknum í gær. Peningana vill hann nota til þess að bjóða í gott partý. Það verður öllum þeim sem vilja fagna velgengni Íslands á EM í höfuðborg Danmerkur í kvöld.


Tengdar fréttir

Frikki aftur á meðal þeirra bestu í Kaupmannahöfn

Íslenski veitingastaðurinn Laundromat Cafe á Gl. Kongevej í Kaupmannahöfn hefur verið tilnefndur til verðlaunanna "Best Brunch in Town" sem vefsíðan Alt om Kobenhavn heldur úti. Vefsíðan er í eigu dagblaðsins Berlinske Tidende.

Friðrik á forsíðu Berlingske

"Þetta er auðvitað mjög skemmtilegt enda Berlingske stórt blað,“ segir athafnamaðurinn Friðrik Weisshappel, sem búsettur er í Kaupmannahöfn. Hann er á forsíðu danska stórblaðsins Berlingske Tidende og prýðir risastóru opnu í aukablaði þess, AOK, en það er einnig stærsta netsvæði Danmerkur. Fyrirsögnin gæti ekki verið jákvæðari í garð Friðriks; "íslenskt kaffihús slær í gegn, Kaupmannahafnabúar elska Laundromat Café þar sem brosmildi og börn eru velkomin.“ Inní blaðinu er síðan flennistór grein þar sem haft er eftir Friðrik að maður megi aldrei slátra sjarmanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×