Lífið

Frikki Dór kom ungum dreng á óvart og afhenti honum Playstation 4 tölvu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Söngvarinn Friðrik Dór kom einum heppnum dreng heldur betur á óvart á dögunum þegar hann gaf honum glænýja Playstation 4 tölvu.

Tindur hefur verið duglegur í vegabréfaleik N1 og var honum því komið á óvart í Borganesi þegar Friðrik Dór gekk að honum, tók lagið og afhenti honum tölvuna.

Drengurinn var að vonum ánægður og virtist vera í þó nokkru sjokki. Hér að ofan má sjá myndband af því þegar Frikki Dór mætti með tölvuna á svæðið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×