Bíó og sjónvarp

Friends-stjarna tekur við af Jeremy Clarkson í Top Gear

Stefán Árni Pálsson skrifar
Matt LeBlanc lék Joey í Friends.
Matt LeBlanc lék Joey í Friends. vísir/BBC
Leikarinn Matt LeBlanc hefur verið kynntur til sögunnar sem nýr kynnir í bílaþáttunum Top Gear en þættirnir eru sýndir á BBC 2.

LeBlanc er þekktastur fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Friends en ásamt honum mun Chris Evans einnig hafa umsjón með þessum gríðarlega vinsælu þáttum. Enn á eftir kynna fleiri nöfn til sögunnar. 

Jeremy Clarkson var á dögunum rekinn úr þættinum í kjölfar hávaðarifrildis við framleiðanda þáttanna.

Matt LeBlanc á stjörnumetið í þáttunum en hann er hraðasta stjarnan í heiminum eins og sjá má hér að neðan

Tengdar fréttir

Milljónir kvöddu Clarkson

Síðasti þáttur hinna geysivinsælu Top Gear, þar sem allir þáttarstjórnendurnir, Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May, voru samankomnir, fór í loftið á BBC-sjónvarpsstöðinni á sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×