Innlent

Friðrik Brynjar í 16 ára fangelsi

Friðrik Brynjar Friðriksson var nú fyrir stundu dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni nágranna sínum að bana í byrjun maí síðastliðinn.

Þá þarf hann að greiða fjórar milljónir í málskostnað. Þrír dómarar kváðu upp dóminn í Héraðsdómi Austurlands nú eftir hádegi en hvorki Friðrik Brynjar né verjandi hans mættu við dómsuppkvaðninguna.

Við aðalmeðferð málsins í ágúst kom fram að Karl var stunginn 92 sinnum, þar af tvisvar í hjarta. Friðrik Brynjar neitaði sök.

Missti meðvitund á 10 til 30 sekúndum

Í aðalmeðferð málsins gaf þýskur réttarmeinafræðingur skýrslu og kom fram í máli hans að spor eftir hund hefðu fundist í blóði inni á heimili Karls. Það kemur heim og saman við frásögn Friðriks Brynjars sem sagði fyrir dómi að hann hafi verið hundinn sinn með sér.

Réttarmeinafræðingurinn lýsti því að morðinginn hefði veitt karli 92 áverka með hnífi „með miklum ofsa og ofbeldi“. Gat hafi komið á hjarta hans og tveir lítrar af blóði hafi verið í brjóstholi hans þegar lögregla kom á vettvang. Hann hafi að líkindum misst mjög fljótt meðvitund eftir stungurnar í brjóstholið, líklega eftir tíu til þrjátíu sekúndur. 

Til marks um ofsann nefndi sá þýski að gríðarlegt afl þurfi til að stinga hníf í gegnum rifbein manns, auk þess sem brot úr hnífnum hefðu orðið eftir í höfði Karls.

Réttarmeinafræðinginn var spurður hvort hugsanlegt væri að Karl hefði veitt sér áverkana sjálfur, og sá þýski svaraði með semingi að mögulega hefði hann getað stungið sig einu sinni af slíku afli í brjóstholið, en aldrei tvisvar.

„Ég held ég hafi drepið mann“

Við aðalmeðferðina var einnig spiluð upptaka úr símtali Friðriks Brynjars við Neyðarlínuna aðfaranótt 7. maí. Símtalið hófst á orðunum: „Já halló, ég heiti Friðrik Brynjar. Ég held ég hafi drepið mann.“

„Ég kýldi hann einu sinni, beint hnefahögg, og hann datt niður og ég dró hann með mér út fyrir svalirnar,“ heyrðist Friðrik segja við starfsmann Neyðarlínunnar. 

Friðrik var auðheyranlega drukkinn á upptökkunni og á köflum í samtalinu er hann greinilega í miklu uppnámi. „Ég er í sjokki,“ segir hann. „Ég vil ekki fara til hans.“

Í samtalinu fullyrðir Friðrik að hann hafi ekki slegið Karl að ástæðulausu. „Hann réðst á mig,“ sagði hann, og: „Hann reyndi að kyssa mig.“

Ekki liggur fyrir hvort að Friðrik Brynjar ætli að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. 

Karl Jónsson var myrtur á heimili sínu að Blómvangi á Egilsstöðum. Friðrik Brynjar bjó í sömu blokk.

Tengdar fréttir

Dómur í morðmáli í dag

Dómur verður kveðinn upp yfir Friðriki Brynjari Friðrikssyni, sem er ákærður fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni nágranna sínum að bana í maí síðastliðnum. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér 16 ára fangelsi.

Samskiptabrestur tafði morðrannsókn á Egilsstöðum

Svo virðist sem samskiptabrestur á milli Neyðarlínunnar, fjarskiptamiðstöðvar Ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Egilsstöðum hafi orðið til þess að morðrannsókn á Egilsstöðum seinkaði um nokkrar klukkustundir.

Grunaður morðingi var ofurölvi

Friðrik Brynjar Friðriksson, sem sætir ákæru fyrir morðið á Karli Jónssyni á Egilsstöðum í vor, var mjög ölvaður eða jafnvel með áfengiseitrun kvöldið sem Karl var myrtur.

"Ég veit ég gerði þetta ekki“

Aðalmeðferð í manndrápsmáli stendur nú yfir í Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum. Þar er Friðrik Brynjar Friðriksson ákærður fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni að bana á Egilsstöðum þann 7. maí síðastliðinn.

Manndrápsmál í héraðsdómi fyrir austan

Aðalmeðferð í manndrápsmáli stendur nú yfir í héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum. Friðrik Brynjar Friðriksson er ákærður fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni að bana á Egilsstöðum þann sjöunda maí síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×