Menning

Friðar samviskuna með leiksýningu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Leikhópurinn sem sýnir Petru var á æfingu þegar þessi mynd var tekin.
Leikhópurinn sem sýnir Petru var á æfingu þegar þessi mynd var tekin. Fréttablaðið/Stefán
„Það er hættulegt að fresta því að tengjast fólkinu í kringum sig,“ segir Pétur Ármannsson leikstjóri.

Hann kveðst iðrast þess að hafa ekki sinnt langömmu sinni, Petru Sveinsdóttur á Stöðvarfirði, betur meðan tími var til en hún lést fyrir tveimur árum, nokkrum mánuðum áður en hún hefði orðið níræð.





Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Pétur gerir leiksýningu um náinn ættingja.Mynd/úr einkasafni
Nú er Pétur búinn að gera leiksýningu um þessa langömmu sína sem bjó á Stöðvarfirði allt sitt líf og var oft kölluð Steina-Petra enda átti hún stærsta einkarekna steinasafn í heimi að talið er.

Leiksýninguna segir Pétur vera tilraun til að bæta fyrir vanrækslu sína við langömmu.

 Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Pétur gerir leiksýningu um náinn ættingja. Sýningin Dansaðu fyrir mig fjallar um draum föður hans, Ármanns Einarssonar, um að verða atvinnudansari. Sú sýning hlaut tvær tilnefningar til Grímunnar og hefur farið víða.

Petra verður frumsýnd á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Lókal annað kvöld, 29. ágúst, klukkan 19 í Tjarnarbíói.

Frekari upplýsingar má nálgast á lokal.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×