Fótbolti

Fríða skoraði fjögur | Mikilvæg stig til Start

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hólmfríður skrifaði nýlega undir nýjan eins árs samning við Avaldsnes.
Hólmfríður skrifaði nýlega undir nýjan eins árs samning við Avaldsnes. Mynd/Heimasíða Avaldsnes
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði fjögur mörk í 5-0 sigri Avaldsnes á Fanndísi Friðriksdóttur og félögum í Kolbotn.

Hólmfríður skoraði þrennu í fyrri hálfleik og bætti við marki í síðari hálfleik. Avaldsnes er í 4. sæti deildarinnar með 29 stig en Kolbotn í 6. sæti með 25 stig.

Matthías Vilhjálmsson spilaði allan leikinn og Guðmundur Kristjánsson kom inn á af bekknum í 1-0 útisigri Start á Hönesfoss í norsku úrvalsdeidlinni.

Liðin eiga í harðri botnbaráttu og stigin því mikilvæg fyrir nýliðana.

Steinþór Freyr Þorsteinsson byrjaði og Steven Lennon skoraði fyrir Sandnes Ulf í 2-0 heimasigri á Sarpsborg 08. Guðmundur Þórarinsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson léku allan leikinn með gestunum sem sitja í botnsæti deildarinnar.

Birkir Már Sævarsson lék allan leikinn með Brann sem tapaði 4-3 á útivelli gegn Välerenga. Brann er í 6. sæti með 33 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×