Skoðun

Frí fram undan – komum heil heim

Sigrún Knútsdóttir skrifar
Sumarleyfin eru fram undan, sumarbústaðahverfin eru vöknuð og umferðin á þjóðvegunum eykst. Sumir velja að eyða fríinu í rólegheitum, aðrir þjóta upp á fjöll eða leita á vit annarra ævintýra. Einhverjir ætla kannski að nota fríið til að dytta að húsinu sínu eða mála þakið. Hraði og spenna eru oft samfara fríinu. Slysahættur leynast víða en þær eru mestar þegar breytt er út af vananum.

Mænuskaði er meðal alvarlegustu afleiðinga slysa og hefur mikil áhrif á einstaklinginn og fjölskyldu hans. Margir þurfa að læra að lifa lífinu að nýju við gerólíkar aðstæður, oft lamaðir og háðir hjólastól eða með verulega skerta færni ævilangt.

Helstu orsakir mænuskaða hér

Umferðarslys eru algengasta orsök mænuskaða. Flest þeirra hafa átt sér stað í bílveltum úti á þjóðvegum landsins, oft í beygjum eða lausamöl. Í langflestum tilfellum hefur hinn slasaði ekki notað bílbelti og stundum hefur verið um of hraðan akstur að ræða miðað við aðstæður.

Notkun vélhjóla hefur aukist til muna á undanförnum árum. Mikill hraði er oft samfara vélhjólanotkun og þá þarf lítið að bregða út af til að alvarlegt slys verði.

Fall er næst algengasta orsök mænuskaða hér á landi og getur verið um að ræða fall úr mikilli hæð allt niður í fall á jafnsléttu. Slík slys geta hent hvern sem er.

Frístundaslys eru u.þ.b. 20% af öllum mænuskaðaslysum og eru hestaslys algengust þeirra. Áhugi á hestamennsku fer sívaxandi og fjöldi þeirra sem hefur fengið mænuskaða í hestaslysi hefur einnig aukist.

Samkvæmt gögnum frá WHO, alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, eru dýfingaslys algengasta frístundaslysið í heiminum sem veldur mænuskaða. Flest þessara slysa verða á sumrin þegar fólk stingur sér í ár, grunn stöðuvötn eða í sjó. Hér á Íslandi hafa mænuskaðaslys vegna dýfinga verið fátíð en þau hafa öll átt sér stað í grunnum sundlaugum. Strangar öryggisreglur eru á opinberum sundstöðum landsins um dýfingar. Einkasundlaugar eru oftast grunnar og ekki hannaðar til dýfinga. Reglur um dýfingar í tengslum við þær eru sjaldséðar.

Um leið og sumrar sjáum við fréttir með flottum myndum af fólki að leika sér í góða veðrinu að stökkva fram af klettum út í ár, stöðuvötn og sjó, eins og sjá mátti á forsíðu Fréttablaðsins þriðjudaginn 24.júní. Þetta sport verður sívinsælla og heyrst hefur að á samskiptamiðlunum sé unga fólkið að mana hvert annað til að stökkva út í sjó og vötn.

Forðumst mænuskaða

Við getum minnkað áhættuna á alvarlegum slysum með nokkrum einföldum ráðum:

Notaðu alltaf bílbelti í umferðinni – líka í aftursætinu

Aktu miðað við aðstæður – gættu að hraðanum og lausamölinni

Fylgdu öryggisreglum í byggingavinnu

Sýndu aðgát í bröttum hlíðum, skriðum og klettum

Fylgdu öryggisreglum, sýndu aðgát og tillitssemi í hestamennsku

Gættu að dýpi vatns og athugaðu botn þess áður en þú stingur þér

Aldrei stinga þér í grunna sundlaug, stöðuvatn, á eða í sjó

Kæru landsmenn, förum eftir þessum einföldu ráðum, njótum sumarsins og komum heil heim.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×