Fótbolti

Freyr: Vel besta liðið sama í hvaða landi leikmenn spila

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins, sendi frá sér yfirlýsingu nú undir hádegi þar sem hann svarar ummælum Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar, fyrrum landsliðsþjálfara, í Fréttatímanum að einhverju leyti.

Þar skaut Sigurður fast á Frey fyrir að vera með fordóma í garð kínverskrar knattspyrnu og að standa í vegi fyrir leikmönnum að fara til Kína með hótunum um að það hefði áhrif á stöðu þeirra í landsliðinu.

Sigurður Ragnar sendi svo frá sér afsökunarbeiðni í morgun þar sem hann bað Freyr afsökunar á að hafa ásakað hann um fordóma.

Freyr telur greinilega mikilvægt að taka fram að hann skipti sér ekki af því hvaða lið landsliðsmenn kjósi að spila með.

Hann segir enn fremur að hann velji ávallt besta liðið og skipti engu máli í hvaða landi leikmenn spili.

Yfirlýsing Freys:

Að gefnu tilefni.

Sem landsliðsþjálfari er ég í reglulegu sambandi við leikmenn landsliðsins um ýmis mál.  Það er mikilvægt að þær geti leitað til mín með hvað sem er, ráðgjöf eða annað. Þegar leikmenn leita til mín og spyrja hvað mér finnst, þá verða þær að geta treyst því að ég sé heiðarlegur í mínum svörum.

Það er þó alveg klárt mál að ég sem landsliðsþjálfari læt mér ekki detta í hug að stjórna því hvaða félagslið leikmenn ákveða að spila fyrir.

Þessir leikmenn eru sterkir karakterar, reynslumiklir leikmenn, og þær eru fullfærar um að taka þessar ákvarðanir sjálfar. Það eru leikmennirnir sjálfir sem ákveða hvar þeir spila í félagsliðum.

Hlutverk landsliðsþjálfara er að undirbúa sitt lið og stýra því í verkefnum með það fyrir augum að ná sem bestum knattspyrnulegum árangri.  Með það í huga vel ég alltaf það sem ég tel besta liðið hverju sinni.  Í hvaða landi leikmenn eru að spila með félagsliði hefur ekki áhrif á það.

Virðingarfyllst og í von um að geta sett alla orku í réttan farveg.....undirbúning fyrir EM 2017.

Freyr Alexandersson


Tengdar fréttir

Dagný: Skil ekki hvaða bíó er í gangi

Báðar landsliðskonurnar sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Jiangsu Suning, vildi fá til Kína hafa nú tjáð sig um ummæli hans í Fréttatímanum í dag.

Siggi Raggi biður Frey afsökunar

Sigurður Ragnar Eyjólfsson sendi frá sér yfirlýsingu nú í morgun en ummæli hans í Fréttatímanum í dag hafa heldur betur vakið athygli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×