Íslenski boltinn

Freyr valdi flestar úr Breiðabliki og Val

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska liðið fyrir leik á móti Hvíta-Rússlandi.
Íslenska liðið fyrir leik á móti Hvíta-Rússlandi. Vísir/Vilhelm
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður með íslenska liðið í æfingabúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu í þessum mánuði.

Freyr hefur valið 23 leikmenn í æfingahóp sinn en æfingarnar fara frá 21. til 24. janúar næstkomandi.

Þetta er nýtt fyrirkomulag hjá íslenska kvennalandsliðinu sem hefur oftast hitt í kringum jól og áramót en nú fær liðið tækifæri til að æfa saman nú þegar styttist í fyrstu landsleiki ársins á Algarve-bikarnum í Portúgal.

Það vekur athygli að sex leikmanna hópsins spila með erlendum liðum og koma því heim til Íslands til að taka þátt í æfingunum. Katrín Ómarsdóttir snýr nú aftur í landsliðið en hún var ekki með í verkefnunum síðasta haust.

Freyr velur flesta leikmenn úr liðum Breiðabliks og Vals en sjö leikmenn koma frá Íslandsmeisturum Blika og fjórir leikmenn frá Val. Þrjár af landsliðskonunum spila með Stjörnunni.

Allar landsliðskonur Valsliðsins gengu til liðs við Hlíðarendaliðsins í vetur en Valur hefur verið afar öflugt á félagsskiptamarkaðnum.

Íslenska landsliðið hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína í undankeppni Evrópumótsins í Hollandi 2017 og það er mjög spennandi ár framundan hjá stelpunum okkar.



Æfingahópur  A-landsliðs kvenna í fótbolta frá 21. janúar til 24. janúar 2016:

Hólmfríður Magnúsdóttir     Avaldsnes

Andrea Rán Hauksdóttir     Breiðablik

Fanndís Friðriksdóttir     Breiðablik

Guðrún Arnardóttir     Breiðablik

Hallbera Guðný Gísladóttir     Breiðablik

Rakel Hönnudóttir     Breiðablik

Sonný Lára Þráinsdóttir     Breiðablik

Svava Rós Guðmundsdóttir     Breiðablik

Katrín Ómarsdóttir     Doncaster

Guðbjörg Gunnarsdóttir     Djurgarden

Glódís Perla Viggósdóttir     Eskilstuna

Sara Björk Gunnarsdóttir     FC Rosengard

Berglind Björg Þorvaldsdóttir     Fylkir

Guðmunda Brynja Óladóttir     Selfoss

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir     Stabæk

Anna Björk Kristjánsdóttir     Stjarnan

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir     Stjarnan

Sandra Sigurðardóttir     Stjarnan

Arna Sif Ásgrímsdóttir     Valur

Elísa Viðarsdóttir     Valur

Margrét Lára Viðarsdóttir     Valur

Thelma Björk Einarsdóttir      Valur

Sandra María Jessen      Þór/KA




Fleiri fréttir

Sjá meira


×