Íslenski boltinn

Freyr: Þú verður að klára færin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson. vísir/valli
„Við fengum mörg færi, pressuðum vel og komum okkur í opnar stöður og í svona leikjum þá verður þú að klára færin sem þú færð og við erum að súpa seyðið af því,“ sagði Freyr Alexandersson þjálfari Íslands eftir 1-0 tapið gegn Danmörku á Laugardalsvelli í kvöld.

„Þær skora gott mark svo sem, það var vel spilað. Við vissum alveg að þær myndu fá færi en við áttum bara að vera komin í 1 eða 2-0 í fyrri hálfleik.

„Leikskipulagið gekk eins og sögu og þess vegna svíður það svolítið að hafa ekki náð inn þessu marki. Það breytir svo mikið leiknum. Þá hefðum við getað þrengt svæðin ennþá frekar, tekið okkur tíma í þetta og siglt þessu heim. Í staðin komast þær 1-0 yfir og sigla þessu heim,“ sagði Freyr.

Danska vörnin var í miklum vandræðum í fyrri hálfleik og átti fá svör við leik íslenska liðsins.

„Þetta var svipað og í fyrri leiknum gegn Dönum. Við erum með kröftuga leikmenn og þegar þær koma af mikilli ákefð á andstæðinginn þá vinna þær boltann oft. Danirnir vilja reyna að spila og við vissum það. Við reyndum að koma á þær og vinna boltann og það gekk vel. Ég er ofboðslega fúll að hafa ekki fengið mark út úr því.

„Stóra skýringin er að það fór mikil orka og svo lendum við undir og ég er ekki viss um að við höfum haft nægjanlega orku til að gera betur. Ég veit að stelpurnar vildu það en við misstum aðeins neistann. Það vantaði kraftinn sem við höfðum í fyrri hálfleik þar sem við vorum gjörsamlega með leikinn.

„Það er mjög leiðinlegt að draumurinn sé úti og svo fannst mér leikmennirnir eiga það skilið að fá þrjú eða að minnsta kosti stig út úr þessum leik. Miðað við frammistöðuna og framlagið þá er ég svekktur fyrir okkar hönd, allra,“ sagði Freyr.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×