Fótbolti

Freyr: Set þann sem mér sýnist á bekkinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Valli
Ísland mætir Serbíu í síðasta leik sínum í undankeppni HM 2015 á Laugardalsvelli í dag og Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, er óhræddur við að gefa ungum leikmönnum tækifærið.

Ísland á ekki lengur möguleika á að komast áfram upp úr riðlinum og valdi hann því ungt lið að þessu sinni. Dagskipunin er engu að síðu sigur en stelpurnar höfðu betur gegn Ísrael, 3-0, um helgina.

Eftir leikinn var Freyr ósáttur við margt í leik liðsins en það var aðeins betri tónn í honum á æfingu liðsins í gær.



Fanndís Friðriksdóttir í leiknum gegn Ísrael.Vísir/Andri Marinó
„Sem betur fer skoðaði ég leikinn betur og það var margt jákvætt í gangi hjá okkur. Ég var pirraður eftir leikinn og þá vill maður oft fremur sjá það neikvæða,“ sagði Freyr í samtali við Vísi.

„Ég var helst ósáttur við ákvarðanatöku á síðasta þriðjungnum en við vorum búin að tala um að hafa það í lagi. Það þarf meiri yfirvegun og skynsemi og leikmenn þurfa að þora að taka af skarið og vera ekki of stressaðir á boltanum. Stelpurnar eiga að vera óhræddar við að láta ljós sitt skína.“

Hann segist ánægður með þá ungu leikmenn sem hann valdi í hópinn. „Það hefur verið að tínast einn og einn ungur leikmaður inn í hópinn og fjöldi þeirra leikmanna sem eru með tíu landsleiki eða færri er orðinn nokkuð mikill.“

Sigrún Ella Einarsdóttir á landsliðsæfingu í gær.Vísir/Valli
Sigrún Ella [Einarsdóttir] kom inn á um helgina og var frábær. Hún gerði nákvæmlega það sem ég bað hana um - að taka á leikmenn og koma boltanum fyrir markið. Hún hefur verið frábær í deildinni í sumar og blómstrað í nýju umhverfi í Stjörnunni. Hún er að spila eins og Giggs árið 1995 en það eru ekki margir slíkir leikmenn til í íslenskri knattspyrnu, hvort sem er karla- eða kvennamegin.“

Sigrún Ella kom inn á sem varamaður gegn Ísrael og Freyr segist óhræddur við að setja Fanndísi Friðriksdóttur á bekkinn í hennar stað í dag ef honum sýnist svo.

„Ég geri það við hvaða leikmann sem mér sýnist,“ sagði hann og brosti. „Það er enginn heilagur. Leikmenn hafa alltaf fengið útskýringar á sínum hlutverkum á liðinu og tekið því vel. Fanndís er engin undanteking á þeirri reglu.“

Leikurinn hefst klukkan 17.00 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Skil sátt við landsliðið

Þóra B. Helgadóttir verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu gegn Ísrael í dag og gegn Serbíu á miðvikudaginn en það verða síðustu landsleikir hennar. Þóra gerir ráð fyrir að leggja hanskana á hilluna í haust.

Ólína hætt með landsliðinu

Bakvörðurinn Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir tilkynnti í viðtali á RÚV í hálfleik Íslands og Ísrael á Laugardalsvelli að hún sé búinn að setja landsliðsskóna upp í hillu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×