Fótbolti

Freyr: Frábærir kaflar inn á milli hjá okkur á þessu móti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta.
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. Mynd/Youtube-síða KSÍ
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, var í viðtali á Youtube-síðu Knattspyrnusambands Íslands eftir 1-0 sigur íslenska liðsins á Úsbekistan í lokaleik sínum á Sincere Cup æfingamótinu í Kína í dag.

„Það var mjög mikilvægt að enda þetta á sigri sérstaklega í ljós þessi hvernig leikurinn var. Það hefði verið ótrúlega pirrandi að fara heim með jafntefli eða tap. Það var því gott að ná sigri,“ sagði Freyr í samtali við Hilmar Þór Guðmundsson Norðfjörð, fjölmiðlafulltrúa KSÍ, sem fylgdi íslensku stelpunum út til Kína.

„Þær voru bara fínar í leiknum. Stelpurnar spiluðu boltanum vel á milli sín og komust í fullt af góðum færum. Við þurfum síðan að fara að hugsa um það núna að við erum ekki að taka nógu góðar ákvarðanir á síðasta þriðjungnum. Við höfum áður lent í þeim fasa eða fyrir tveimur árum síðan. Við leiðréttum það og það er eitthvað sem er í gangi núna,“ sagði Freyr.

„Við erum án Hörpu (Þorsteinsdóttur) og Margrét (Lára Viðarsdóttir) er ekki á fullum krafti með okkur. Við erum því búin að missa þessa tvo fremstu leikmenn í burtu þótt að Margrét sé að reyna. Við reyndum að fá eins mikið út úr henni og við gátum á þessu móti. Við þurfum að aðlaga okkur og þetta mót fór aðeins í það,“ sagði Freyr.

„Það er ótrúlega mikilvægt að vera búnar að hlaupa aðeins og lenda á nokkrum veggjum núna áður en við förum inn í nýtt ár. Ég er virkilega ánægður með þetta mót hjá okkur,“ sagði Freyr.

„Það komu alveg frábærir kaflar inn á milli hjá okkur á þessu móti. Þetta var góð æfing og góðu ári er lokið. Ég er hrikalega sáttur,“ sagði Freyr.

„Þetta mót var mikil upplifun og skemmtun. Ætli ég verði ekki að koma líka inn með orðin hiti og raki. Það er frábært að upplifa það að spila við þannig aðstæður,“ sagði Freyr.

Það er sjá að finna allt viðtalið við Frey hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Fanndís afgreiddi Úsbekana út í Kína

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann lokaleik sinn á Sincere Cup æfingamótinu í Kína og endar annaðhvort í öðru eða þriðja sæti á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×