Fótbolti

Freyr: Austurríska liðið er alls ekki ólíkt því íslenska

Tómas Þór Þórðarson í Rotterdam skrifar
Austurríki hefur komið skemmtilega á óvart.
Austurríki hefur komið skemmtilega á óvart. vísir/getty
Stelpurnar okkar mæta Austurríki í kvöld í síðasta leik sínum á EM 2017 í fótbolta en þær eru úr leik eftir töp í tveimur fyrstu leikjunum.

Austurríska liðið hefur komið skemmtilega á óvart en það vann Sviss, 1-0, í fyrstu umferðinni og gerði svo 1-1 jafntefli við Frakklandi í annarri umferð.

„Þær hafa spilað þetta mót frábærlega vel eins og við áttum von á. Þetta er lið sem er algjörlega sátt við sinn leikstíl. Bæði leikmenn, þjálfarar og umhverfið í kringum liðið,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari Íslands.

„Austurríki spilar taktískt mjög skemmtilega og á annan hátt heldur en flest lið. Þær spila 4-4-2 í sókn en verjast í 5-4-1. Austurríki spilar hápressu. Þegar boltinn verður á okkar vallarhelmingi fara þær í pressu.“

Manuela Zinsberger, markvörður Austurríkis, er eitt mesta efni í heiminum.vísir/getty

Ekkert á óvart

„Þær eru að skora 50 prósent marka sinna úr föstum leikatriðum. Liðið er mjög sterkt í þeim. Það hefur svo gríðarlega öfluga framherja í fremstu röð sem nýta færin sín vel. Þetta er gríðarlega vel þjálfað lið sem hefur sterka liðsheild og spilar af krafti. Alls ekki ólíkt íslenska liðinu,“ segir Freyr.

Íslenski hópurinn hefur verið að njósna um Austurríki í langan tíma eða síðan það var ljóst að liðin myndu mætast á EM.

„Árangur Austurríkis kemur mér ekkert á óvart. Við höfum fylgst með þessu liði náið undanfarin misseri. Ég hitti þjálfara þess í vetur á UEFA-námskeiði og við ræddum austurríska kvennaboltann. Þetta lið hefur náð langt á síðustu þremur til fórum árum,“ segir Freyr.

Freyr Alexandersson er hrifinn af því sem Austurríki er að gera.vísir/tom

Hugsa bara um okkur

„Ég virði austurríska liðið mikið fyrir það sem það hefur gert og ég held að það mun halda áfram að þróast á næstu árum.“

Í fyrra unnu íslensku strákarnir þá austurrísku í lokaumferð riðlakeppni EM 2016 og komu þannig í veg fyrir að Austurríki kæmist í útsláttarkeppnina. Íslensku stelpurnar geta gert það sama í kvöld en Freyr hugsar ekkert um það.

„Ekki einu sinni hef ég hugsað um leikinn hjá karlaliðinu þegar það spilaði á móti Austurríki í júní í fyrra. Við erum ekki að einbeita okkur neitt að því sem Austurríki er að gera. Þeirra örlög eru í þeirra eigin höndum en við einbeitum okkur bara að því að spila fótbolta,“ segir Freyr Alexandersson.


Tengdar fréttir

Stór stund í Hollandi fyrir stóra fjölskyldu

Ólíklegt má telja að nokkur landsliðskona á Evrópumótinu í Hollandi komist með tærnar þar sem Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur hælana hvað systkinafjölda varðar. Gunnhildur á sjö alsystkin sem öll eru mætt ásamt foreldrunum.

Stelpurnar okkar ætla að njóta síðustu stundanna á EM

Stelpurnar okkar mæta Austurríki í kvöld í lokaleik sínum á Evrópumótinu 2017. Sama hvað gerist í Kastalanum í Rotterdam – íslenska liðið er á heimleið. Stelpurnar ætla sér sigur og að yfirgefa Holland með stolti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×