Sport

Freyr, formaður FRÍ: Þetta er frábært skref á ferli Anítu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aníta Hinriksdóttir keppti á Ól í Ríó á síðasta ári.
Aníta Hinriksdóttir keppti á Ól í Ríó á síðasta ári. Vísir/Getty
Freyr Ólafsson, formaður Frjálsíþróttasambands Íslands, var að sjálfsögðu mjög kátur þegar Vísir heyrði í honum eftir að Aníta Hinriksdóttir tryggði sér bronsverðlaun á EM innanhúss í Belgrad í Serbíu.

Freyr var staddur út í Belgrad og fylgdist með Anítu vinna fyrstu verðlaun Íslands á Evrópumóti innanhúss í 19 ár eða síðan að Vala Flosadóttir vann brons á EM í Valencia 1998.

„Það er ekki hægt annað en að vera kát með árangurinn,“ sagði Freyr Ólafsson þegar Vísir heyrði í honum eftir hlaupið.

Sjá einnig:Aníta vann bronsverðlaun á EM

„Árið 2016 var einstak í íslenskri íþróttasögu og það er ekki leiðinlegt að við höldum áfram með þessi góðu afrek á árinu 2017,“ sagði Freyr en hvernig leið honum sjálfum á meðan hlaupinu stóð.

„Ég var bara stressaður og spenntur eins og væntanlega flestir sem fylgdust með þessu hvar sem menn voru staddir í heiminum. Ég var svo heppinn að fá að horfa á þetta beint í stúkunni. Ég viðurkenni það alveg að þetta var afskaplega taugatrekkjandi en skemmtilegt,“ sagði Freyr.

Sjá einnig:Aníta ætlar að reyna að klára lyfjaprófið fyrir verðlaunahendinguna

„Hún kláraði ekki bara eitt hlaup heldur kláraði hún þrjú hlaup með glæsibrag. Hún sýndi í hversu góðu formi hún er og þó að hún hafði þurft að berjast í tveimur hlaupum þá átti hún nóg eftir í þetta þriðja,“ sagði Freyr.

„Það er mjög skemmtilegt að sjá hana stíga þetta skref. Þetta er frábært skref á ferli Anítu. Það er mjög gaman að þessu. Þetta er æðislegt og við komum brosandi heim,“ sagði Freyr.

Sjá einnig:Sjöttu verðlaun Íslendings á EM og þau fyrstu síðan 1998




Fleiri fréttir

Sjá meira


×