Innlent

Fréttir af Error 53 byggðar á misskilningi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Tómas Kristjánson, framkvæmdastjóri iSímans, segir að fréttir af Error 53 villumeldingunni í iPhone 6 séu á misskilningi byggðar.
Tómas Kristjánson, framkvæmdastjóri iSímans, segir að fréttir af Error 53 villumeldingunni í iPhone 6 séu á misskilningi byggðar. Vísir/Getty
Fréttir um það að iPhone 6 símar verði mögulega ónothæfir, ef gert er við þá á verkstæðum sem ekki eru viðurkennd af Apple, eru byggðar á misskilningi að mati Tómasar Kristjánssonar, framkvæmdastjóra og eiganda iSímans, sem um árabil hefur sinnt viðgerðum á Apple-tækjum.

Málið vakti athygli um helgina þegar breska miðillinn Guardian fullyrti að þúsundir eigenda iPhone 6 síma væru ósáttir við Apple eftir að hafa fengið villumeldinguna 'Error 53' upp á símanum sínum eftir að hafa látið laga 'home-takkann' og í kjölfarið sett upp nýjustu útgáfu af  iOS-stýrikerfinu, iOS9. Við það verður síminn ónothæfur.

Tómas segir að ábyrgir viðgerðaraðilar, hvort sem þeir séu viðurkenndir af Apple eða ekki, skipti hreinlega ekki um 'home-takkann'. Laskist hann sé það ábyrgðarmál og hægt sé að setja símann í svokallað útskiptiferli til þess að fá nýjan síma. 

Þær fregnir sem berist af 'Error 53' núna út í heimi séu tilkomnar vegna þess að fólk hafi farið með síma sína í viðgerð á verkstæði sem ekki er hægt að treysta. Villumeldingin sé einfaldlega öryggisráðstöfun af hálfu Apple ef skipt yrði um home-takkann sem sé í rauninni aldrei gert.

„Verkstæði taka þessa viðgerð ekki að sér og ég man varla eftir því að hafa fengið iPhone 6 síma til okkar með laskaðan home-takka,“ segir Tómas.

Líkja má 'home-takkanum' við lykil en hann veitir aðgang að persónuupplýsingum sem finna má í símanum. Í honum er m.a. fingrafaraskanni sem les fingrafar eigendans auk þess sem víða erlendis er hægt að nota hnappinn til þess að greiða fyrir vörur og þjónustu með því að nota takkann.

„Þetta er ekkert annað en bara öryggisráðstöfun og mikilvægt öryggistæki af hálfu Apple sem vill frekar að síminn verði ónothæfur í stað þess að persónuupplýsingar komist í hendur óprúttinna aðila,“ segir Tómas.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×